Upplýsingar um seljanda
Seljandi er Ultraform ehf
Kennitala: 560320-1160
Staðsetning: Kirkjustétt 2-6, 113 Reykjavík
Netfang: ultraform@ultraform.is
Símanúmer: 662-1352
VSK númer: 139753
Almennt
Kaupandi verður að vera orðinn fjárráða til þess að eiga viðskipti í vefverslun Ultraform, Ultraform.is. Eftirfarandi skilmálar gilda um viðskipti seljanda og kaupanda svo og um notkun á netversluninni Ultraform.is. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur seljanda annars vegar og kaupanda hins vegar. Þegar sérstökum ákvæðum þessara skilmála sleppir gilda um viðskiptin lög um neytendakaup nr. 48/2003 og eftir atvikum lög um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og lög um þjónustukaup nr. 42/2000. Ultraform ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða vegna þess að varan sé uppseld. Allar upplýsingar á vefnum eru með fyrirvara um prentvillur, verðbreytingar og birgðastöðu.
Verð
Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum með virðisaukaskatti ýmist 11% eða 24%. Vinsamlegast athugaðu að verð í netverslun geta breyst án fyrirvara vegna rangra verðupplýsinga eða prentvilla.
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Kaupandi getur skilað vöru svo lengi sem varan er ennþá í sölu, að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, vörunni sé skilað í góðu lagi í upprunalegum umbúðum, fæðubótarefni verða að hafa órofin innsigli, og að greiðslukvittun fylgi með í verslun okkar að Kirkjustétt 2-6, 113 Reykjavík. Ef þú kemst ekki til okkar þá getur þú sent okkur vöruna. Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda. Varan er endurgreidd að fullu ef henni er skilað innan 14 daga og ofangreind skilyrði eru uppfyllt. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda.
Endursending á vörum sendist:
Ultraform ehf., kt: 560320-1160, Kirkjustétt 2-6, 113 Reykjavík.
Ábyrgðarskilmálar
Ábyrgð seljanda er í samræmi við það sem kveðið er á um í lögum um neytendakaup. Ábyrgð á galla á vöru er 2 ár frá því að kaupandi fékk vöru afhenta. Ef hins vegar um er að ræða sölu á vöru til fyrirtækis er ábyrgð á galla 1 ár.
Kom fram galli sem rekja má til framleiðslugalla á þessu tímabili skiptum við henni út fyrir nýja eða endurgreiðum hana. Athugið að ábyrgðin nær ekki til tjóns sem hlýst af slysi, vanrækslu, venjulegu sliti eða eðlilegu litatapi sem verður við notkun og þegar á líður. Vörunni skal skilað í verslun að Kirkjustétt 2-6, 113 Reykjavík
Sendingarmöguleikar og kostnaður
Sendingarkostnaður bætist við í lok kaupferils áður en greiðsla fer fram. Pósturinn sér almennt um útkeyrslur. Kostnaður við sendingu:
Sækja í verslun – frítt Pakki á næsta pósthús eða póstbox – 990 kr. Pakki heim að dyrum (þar sem slík þjónusta er í boði) – 1490 kr.
Eftirfarandi verð gildir ekki við stærri og þyngri pakka, sendingarkostnaður slíkra vara verður ákveðin verður ákveðin í samráði við kaupanda og stærð og þyngd vöru.
Pantanir eru í flestum tilfellum afgreiddar frá okkur innan tveggja sólarhringa á virkum dögum en í sumum tilvikum geta liðið 3 – 4 dagar að fá vöruna í hendur eftir að pöntun er gerð. Pantanir eru ekki sendar út á laugardögum og sunnudögum.
Greiðslur
Allar kortagreiðslur fara í gegnum örugga greiðslusíðu Rapyd Europe hf. og hægt er að greiða með öllum debit- og kreditkortum frá Visa og Mastercard. Einnig er hægt að velja um milifærslu en reikningsupplýsingar Ultraform eru eftirfarandi: Kt: 560320-1160 reikningur: 0186-26-200130. Skrifa þarf pöntunarnúmer í tilvísun þegar greitt er með milifærslu og senda greiðslukvittun á ultraform@ultraform.is
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem að hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. Seljandi meðhöndlar persónuupplýsingar kaupanda vegna notkunar á vefsvæðinu Ultraform.is í samræmi við gildandi lög og reglur um meðferð persónulegra upplýsinga á hverjum tíma.
Varnarþing
Skilmálar þessi eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli.
Annað
Við heitum fullum trúnaði við viðskiptavini okkar og afhendum ekki upplýsingar til þriðja aðila.
Hafa samband
Sendið okkur línu á ultraform@ultraform.is ef þið hafið eitthverjar fyrirspurnir og við svörum þér eins fljótt og auðið er.