Hvað er UltraForm ?
UltraForm eru tvær lítlar fjölskyldureknar æfingastöðvar, ein í Grafarholti sem er búin að vera opin frá júlí 2020 og hin er að fara að opna á Akranesi þann 15.sept 2021. Við leggjum áherslu á árangur og ánægju. Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref í hreyfingu eða ert lengra komin í æfingum þá finnuru æfingar og þjálfun sem hentar þínu markmiði. Stöðin er í eigu á Sigurjóni Erni Sturlusyni og Simonu Vareikaité
Hvernig varð UltraForm til ?
Sigurjón Ernir byrjaði með útiþreksþjálfun í skúrnum hjá sér sumarið 2017 með lítinn hóp af toppfólki. Hægt og rólega stækkaði hópurinn og Sigurjón sá fljótlega tækifæri til að hjálpa fleirum að komast í toppform og hjálpa fólki að byggja upp úthald, styrk og snerpu sem eru þættir sem leggja grunn að árangri í hvaða íþrótt sem er. Eftir 2 ár losnaði lítið bil í Kirkjustétt 2-6 og við ákváðum að grípa tækifærið og 1. júlí 2020 var sá draumur að veruleika og heitir í dag UltraForm.
Okkar markmið:
Okkar slagorð er árangur og ánægja og það er upplifun sem við viljum að okkar viðskiptavinir öðlist í gegnum sína þjálfun. Það geta allir byggt upp allhliða hreysti og úthald. Við í UltraForm viljum hjálpa þér að ná alla leið með fjölbreyttri og skemmtilegri þjálfun.