Image Alt

Hólmsheiðarhlaup

Hólmsheiðarhlaup Fram og UltraForm er haldið í fyrsta skipti fimmtudaginn 30. júní. Hlaupið er utanvegahlaup, en haldið á höfuborgarsvæðinu og er því aðgengilegt fyrir alla sem vilja prófa utanvegahlaup.

Staðsetning og tímasetning

Hlaupið verður ræst hjá UltraForm Kirkjustétt 2-6 í Grafarholti fimmtudaginn 29. júní. Rástímar eru eftirfarandi:

  • 22 km – 17:30
  • 10 km  – 18:30

Athugið að hlaupið byrjar og endar ekki á sama stað og því er annað hvort gott að leggja bílnum hjá Dalskóla og taka upphitun að Kirkjustétt 2-6 eða leggja hjá Kirkjustétt eða Ingunarskóla og taka niðurskokk eftir hlaupið (1,6 km).

Drykkjarstöð efti ca. 5km í styttri hlaupi (22km hlauparar mega ekki nýta sér hana út af ITRA reglum) en fyrir lengra hlaupið er drykkjastöð á leiðinni upp Úlfarsfell í fyrsta hring af tveim, má nýta hana bara 1x

Leiðarlýsing og drykkjarstöðvar

10 km með ca. 200 m hækkun
Hlaupið byrjar hjá hóptímastöðinni UltraForm í Kirkjustétt 2-6 í Grafarholti, hlaupið hefst á stóru bílaplani þar sem byrjað er fyrstu 5-600m á malbiki áður en haldið er í átt að Hólmsheiðinni. Eftir að malbikskafla líkur kemur góð 500m brekka sem æskilegt er að fara ekki of hratt upp. Næst er hlaupin Paradísarhringur sem telur 3 km og er allur utanvega með hækkun og lækkun en þó nokkuð þægilegum stígum. Eftir Paradísarhringinn er komið inná malarveg/götu sem heitir Mjódalsvegur og er sá vegur hlaupin 1 km áður en beygt ef af veginum og haldið í átt að Hólmsheiðarvegi þar sem hlaupið er ca. 2 km eftir þægilegum malar og utanvegaslóða. Þegar komið er að Hólmsheiðarvegi er hlaupið stuttan kafla á veginum áðir en haldið er inn í skóginn og í átt að Reynisvatni. Þegar að Reynisvatni er komið eru 2 km eftir að hlaupinu, 1 km er hlaupinn umhverfis Reynisvatn á þægilegum malarslóða og síðasti kílómeterinn er hlaupinn á malbiki og stuttur kafli á götunni og endar með því að hlaupa inn á nýja Fram fótboltavöllinn þar sem markið verður á miðjum vellinum ásamt drykkjarstöð.

 

21,1 km með ca. 600-700m hækkun 

Fyrri hluti hlaupsins 0-10 km
Hlaupið byrjar hjá hóptímastöðinni UltraForm í Kirkjustétt 2-6 í Grafarholti, hlaupið hefst á stóru bílaplani þar sem byrjað er fyrstu 5-600m á malbiki áður en haldið er í átt að Hólmsheiðinni. Eftir að malbikskafla líkur kemur góð 500m brekka sem æskilegt er að fara ekki of hratt upp. Næst er hlaupin Paradísarhringur sem telur 3 km og er allur utanvega með hækkun og lækkun en þó nokkuð þægilegum stígum. Eftir Paradísarhringinn er komið inná malarveg/götu sem heitir Mjódalsvegur og er sá vegur hlaupin 1 km áður en beygt ef af veginum og haldið í átt að Hólmsheiðarvegi þar sem hlaupið er ca. 2 km eftir þægilegum malar og utanvegaslóða. Þegar komið er að Hólmsheiðarvegi er hlaupið stuttan kafla á veginum áðir en haldið er inní skóginn og í átt að Reynisvatni. Þegar að Reynisvatni er komið er hlaupið umhverfis Reynisvatn á þægilegum malarslóða og svo 1 km á gangstétt og götu áður en beygt er af veginum og hlaupið úr 10 km leiðinni í átt að Úlfarsfelli.

Seinni hluti hlaupsins 10-21,1 km
Eftir að beygt er af veginum er hlaupið á grasi upp að Úlfarsfellsvegi áður en haldið er á Úlfarsfellið. Á Úlfarsfellsvegi verður drykkjarstöð fyrir keppendur áður en haldið er upp á Úlfarsfellið. Eftir drykkjarstöðina hefst 4 km hringur með rétt rúmlega 200m hækkun. Sá hringur er hlaupinn tvisvar sinnum þar sem hlaupið er upp á Úlfarsfell á stíg sem liggur vinstra megin í átt að Mosó og svo komið upp að Úlfarsfellsmerkinu áður en haldið er upp á nýja útsýnispallinn sem stendur efst á Úlfarsfellinu. Eftir að tveim slíkum hringjum er lokið er hlaupið aftur niður stíginn sem liggur í átt að Fram og klárað inn á nýja fótboltavellinum hjá Framheimilinu þar sem markið verður á miðjum vellinum ásamt drykkjarstöð.

Close
About