u

Þjálfarar og eigendur

Eigendur:

UltraForm er í fjölskyldufyrirteki sem er í eigu Sigurjóns Ernis og Símonu Vareikaité.

Þjálfarar:

Sigurjón Ernir Sturluson er eigandi og yfirþjálfari í UltraForm og býr yfir margra ára reynslu styrktar- og úthaldsþjálfun ásamt því að vera menntaður íþróttafræðingur. Sigurjón hefur náð langt í hlaupum jafnt sem hinum ýmsu þrekkkeppnum og vil deila sínum leyndarmálum með viðskiptavinum sínum í UltraForm

 

Þjálfarar í Grafarholti:

Gunnar Örn Freysson. Gunnar býr yfir mikilli þekkingu. Hann er með ketilbjölluréttindi og hefur verið að einkaþjálfa síðustu árin. Hann er frábær þjálfari, hörkutól og kann að búa til krefjandi æfingar.

Rakel María Hjaltadóttir. Hún er ultrahlaupari og mikil áhugamanneskja um hreyfingu. Hún er yndisleg, hlý og frábær þjálfari sem kemur öllum í frábært skap.

G. María Kjartansdóttir. María yndislegur þjálfari með ketilbjölluréttindi og hefur lengi verið að kenna hóptíma. Hún er ofurmamma sem við erum mjög þakklát að hafa meðal okkar þjálfara.

 

Þjálfarar á Akranesi:

Halldór Ragnar Guðjónsson. Halldór hefur margra ára reynslu af þjálfun, hann er nákvæmur, athugull og með yndislega nærveru.

Mjöll Barkardóttir. Hún Mjöll hefur einnig margra ára reynslu af þjálfun, er frábær þjálfari, fyndin og það er alltaf gott að leita til hennar.

[rev_slider slidertitle=“Slider 4″ alias=“slider-4″]
Close
About